|
Þorrinn blótaður í Björtuhlíð. |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 03 febrúar 2012 15:18 |
|
Í dag var þorrablót í Björtuhlíð með hefðbundnum þorramat. Allir klæddust lopapeysum og börnin báru "víkingahjálma" sem að þau höfðu úbúið sjálf. Í gaman saman, fræddu Herdís og Rúna okkur um gamla tímann auk þess sýndi Herdís okkur gamla muni frá afa sínum. Vel lukkaður dagur í alla staði.
Á mánudaginn kemur, verður "Dagur leikskólans" haldinn hátíðlegur. Viljum við af því tilefni bjóða foreldrum í morgunkaffi kl.8:30 og munum við líka sýna myndband með söng allra barnanna í Björtuhlíð. |
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 19 janúar 2012 14:44 |
|
Í desember fengum við rausnalega gjöf frá foreldrafélaginu okkar. Ingibjörg Erna afhenti Kristínu flott hjól sem kemur að góðum notum þegar snjórinn fer að hverfa úr garðinum. Kristín var alsæl með gjöfina eins og sést á myndinni.

|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 05 janúar 2012 14:34 |
|
Textar við lögin sem við syngjum í janúar liggja hér. |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 33 |